Veftré Hafðu samband Leita

Héraðsverk ehf

Hér er hugsanlega hægt að hafa stuttan texta um fyrirtækið í hnotskurn, en einnig er möguleiki að sleppa texta og hafa bara myndir sem breytast þegar nýrri síðu er hlaðið inn. Myndin er tekin við Lagarfljót.

Fyrirtækið

Í marsmánuði árið 1988 tóku um 20 jarðvinnuverktakar á Fljótsdalshéraði höndum saman og stofnuðu fyrirtæki sem þeir nefndu Héraðsverk hf. til að eiga kost á að bjóða í umfangsmikla stækkun og breytingar á Egilsstaðaflugvelli. Að því búnu buðu þeir í verkið og fengu. Síðan hefur fyrirtækið verið rekið sem eins konar klasafyrirtæki í þeim tilgangi að bjóða í stærri verk. Þannig þarf hver og einn hluthafi ekki að eiga allar tegundir tækja eða vera með starfsemi á öllum sviðum. Aftur á móti hafa hluthafarnir sérhæft sig þeim mun meira hver fyrir sig, sem nýtist vel í stórverkefnum þegar allir leggjast á eitt.

Þetta samstarf hefur verið mjög farsælt því að fyrirtækið hefur til þessa skilað öllum sínum verkefnum á umsömdum tíma og jafnvel fyrr. Verktökunum hefur tekist að byggja sig mjög vel upp af tækjum og búnaði, þótt smáir væru í byrjun.

Verkefni fyrirtækisins eru síður en svo bundin við Héraðið. Héraðsverk hefur t.d. unnið að vegagerð í Búlandshöfða á Snæfellsnesi og reisingu snjóflóðavarnagarða á Siglufirði. Flest verkefni Héraðsverks hafa þó verið á Austurlandi, allt frá Hornafirði til Þistilfjarðar. Þá hefur fyrirtækið annast fjölmörg verkefni vegna virkjana- og álversframkvæmda.

Héraðsverk ehf. er alhliða verktakafyrirtæki sem unnið hefur verkefni af öllum gerðum og stærðum, allt frá lagnavinnu upp í jarðgangagerð. Sjá Verk í vinnslu og Fyrri verk.

Í upphafi voru stærstu verkefni fyrirtækisins á sviði jarðvinnu og vegagerðar en seinni ár hefur félagið fært út kvíarnar og haft með höndum stærri og flóknari verkefni á flestum sviðum jarð- og byggingarvinnu:

  • Gröftur og fyllingar
  • Sprengingar
  • Vinnsla jarðefna
  • Klæðing og malbikun
  • Framleiðsla steinsteypu og steinsteyptra eininga
  • Járn- og blikksmíði
  • Jarðlagnir, brunnar, o.þ.h.
  • Snjóhreinsun, hálkueyðing ofl.

Fyrirtækið beitir gæðastjórnun í starfseminni og leggur mjög ríka áherslu á öryggis- og umhverfismál.

Héraðsverk hefur á að skipa öflugum hópi verkfræðinga, tækjastjóra, tæknimanna og verkstjóra auk hæfra starfskrafta til flestra verka.

Sjá nánar hér.

Tækjaflotinn er fjölbreyttur og öflugur, sjá nánar hér.